Í Glerárskóla er laus til umsóknar um 70% staða sérhæfðs starfsmanns. Óskað er eftir atferlisfræðingi, þroskaþjálfa eða starfsmanni með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Ráðning er tímabundið frá 1. ágúst 2026 til 18. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum og faglegum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Meginhlutverk starfsmanns er að sinna nemanda/nemendum á grunnskólaaldri með sértækar þarfir. Starfsmaður er í teymi stoðþjónustu skólans sem sinnir nemendum, í samvinnu við kennara, starfsfólk og stjórnendur, við að efla sjálfstæði og skólafærni þeirra. Tilgangur þess er að nemandi geti verið þátttakandi í skólastarfi og verkefni starfsmanns er að tryggja/stuðla að þeirri aðlögun sem þarf til að nemandi fái jákvæða upplifun af skólalífinu, njóti og læri.
Helstu verkefni sértæks starfsmanns eru m.a.:
Hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um fyrri störf umsækjanda og menntun, auk þeirra verkefna sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni til að sinna starfi sérhæfðs starfsmanns í grunnskóla.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Skúladóttir skólastjóri eyrun@akmennt.is og í síma 461-2666.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026.
