Akureyrarbær

Giljaskóli: Starfsmaður með stuðningi í íþróttahúsi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í Giljaskóla er laus til umsóknar 65 - 100% staða starfsmanns með stuðning í íþróttahúsi. Um er að ræða ótímabundna stöðu. Ráðið verður í starfið frá 14. ágúst 2026.

Leitað er að einstaklingi með metnað, sem sýnir árangur í starfi, og leggur áherslu á vellíðan nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Vegna eðlis starfsins er sérstaklega óskað eftir kvenkyns starfsmanni þar sem klefavarsla er hluti starfsins.

Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.

Einkunnarorð Giljaskóla eru: Ábyrgð - Virðing - Vinsemd

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is

Helstu verkefni:

  • Gæsla og stuðningur við nemendur í íþróttamannvirki og búningsklefum íþróttamannvirkis.
  • Fylgjast með samskiptum og taka samstundis á ágreiningi, áreitni og ofbeldi og vísa málum í réttan farveg, s.s. til kennara eða stjórnenda.
  • Styðja við nemendur í íþróttatímum undir verkstjórn íþróttakennara í því skyni að stuðla að þátttöku, færni og sjálfstæði nemenda.
  • Að sinna minniháttar meiðslum og óhöppum nemenda þegar þess þarf.
  • Leiðbeina nemendum um framkomu og hegðun samkvæmt uppeldis- og agastefnu skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum er skilyrði.
  • Starfsreynsla innan skólakerfis er æskileg.
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
  • Sveigjanleiki í starfi, stundvísi og færni í samskiptum.
  • Kunnátta í skyndihjálp er skilyrði.
  • Gott vald á íslensku.
  • Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Upplýsingar um helstu verkefni er ekki tæmandi upptalning verkefna. Starfsmaður annast önnur þau störf sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans. Taka þarf mið af kynjum við ráðningu þar sem gæsla og eftirfylgd í búningsklefum er hluti af starfinu.

Umsókninni skulu fylgja upplýsingar um fyrri starfsreynslu og þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að. Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum, og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Allar nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri í netfangi elias@akmennt.is eða í síma 462-4820.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð við umsóknir stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown