Laus er til umsóknar staða náms- og starfsráðgjafa við Giljaskóla frá 15. nóvember 2026.
Um er að ræða 70% tímabundna stöðu til 31. desember 2027.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF.
Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir.
Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð-Virðing-Vinsemd“.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Náms- og starfsráðgjafi sinnir fjölbreyttu starfi í samvinnu við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Meðal verkefna er að skipuleggja náms- og starfsfræðslu, leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi, veita nemendum persónulega ráðgjöf, veita foreldrum ráðgjöf, sjá um örnámskeið fyrir nemendur er lúta að t.d námstækni, prófkvíða og öðru er hjálpar nemendum í námi. Undirbúa flutning nemenda milli skólastiga, sinna forvarnarstarfi, vinna í eineltismálum o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, starfsreynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi náms- og starfsráðgjafa. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér starf sitt geta þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veita Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri í síma 462-4820, elias@akmennt.is og Aðalheiður Skúladóttir aðstoðarskólastjóri í síma 462-4820, netfang allas@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.
