Í Giljaskóla er laus til umsóknar 100% staða matráðs. Vinnutími er frá kl. 7:30–15:30. Ráðið er í stöðuna frá 1. nóvember 2026 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026–2027, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Giljaskóli er staðsettur við Kiðagil. Í skólanum eru um 370 nemendur og um 90 starfsmenn.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF.
Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með fjölbreyttar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli sem hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru „ Ábyrgð - Virðing - Vinsemd“.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Helstu verkefni eru:
Hæfniskröfur:
Starfsmenn skólans gegna störfum sínum samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Við ráðningu í starfið verður tekið mið af mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri, í síma 462-4820 eða með tölvupósti á elias@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2026.
