Job Description
Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf í skólaþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni eru:
- Sálfræðilegar athuganir á börnum í leik- og grunnskólum.
- Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla.
- Samþætting verkefna og þróunarvinna á fræðslu- og lýðheilsusviði.
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á svið/stofnanir.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
- Haldgóð þekking á greiningu leik- og grunnskólabarna og ráðgjöf vegna þeirra.
- Haldbær þekking á hegðunarerfiðleikum, tilfinningavanda og þroskafrávikum.
- Reynsla af starfi í skólaþjónustu er æskileg.
- Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við börn.
- Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Áhugi og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð enskukunnátta bæði í í töluðu og rituðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Sálfræðingafélags Íslands.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Vilhjálmsdóttir, forstöðumaður skólaþjónustu í síma 460-1455 og á netfangi helgav@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2026