ÁTVR leitar að öflugum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra reksturs og þróunar. Starfið er lykilstaða í framkvæmdastjórn ÁTVR og felur í sér víðtæka ábyrgð á fjármálum og rekstri fyrirtækisins.
Við leitum að reyndum stjórnanda með sterka leiðtogahæfni, góða fjármálalega og rekstrarlega yfirsýn og hæfni til að leiða þróun og umbætur. Undir starfssviðið heyra meðal annars fjármál, upplýsingatækni og stafræn þróun, samningar, fasteignir og öryggismál.
Framkvæmdastjóri þarf að vera drífandi og umbótasinnaður, hafa ríka greiningarhæfni og geta nýtt gögn og upplýsingar markvisst við ákvarðanatöku. Mikilvægt er að viðkomandi hafi heildarsýn á rekstur og komi auga á tækifæri til aukinnar skilvirkni. Jafnframt skiptir miklu að viðkomandi byggi upp traust og samstöðu og stuðli að hvetjandi og árangursríku starfsumhverfi.
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni. Við úrvinnslu umsókna verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.