Við leitum að framsýnum framkvæmdastjóra til að leiða Greiðslumiðlun Íslands inn í nýtt vaxtarskeið sem hluti af Ásum, vaxandi samstæðu stafrænna þjónustufyrirtækja. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, stefnumótun og uppbyggingu félagsins, í nánu samstarfi við stjórn og móðurfélagið Ása.
Framundan eru spennandi tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar þar sem áhersla verður lögð á tækni, nýsköpun og markvissa nýtingu gervigreindar. Framkvæmdastjóri leiðir öflugt og reynslumikið stjórnendateymi og gegnir lykilhlutverki í að móta sameiginlega framtíðarsýn, setja skýrar áherslur og tryggja árangursríka framkvæmd stefnunnar til að styðja við arðbæran vöxt félagsins. Framkvæmdastjóri er jafnframt andlit félagsins út á við og vinnur náið með stjórnendum systurfélaga innan Ása að sameiginlegum tækifærum.
Greiðslumiðlun Íslands er leiðandi fyrirtæki á sviði fjártækni á Íslandi. Undir merkjum Motus býður félagið fyrirtækjum, sveitarfélögum, lífeyrissjóðum og opinberum aðilum alhliða kröfustýringu sem byggir á öflugum stafrænum lausnum. Þá þróar félagið fjölbreyttar greiðslu- og lánalausnir Pei og Símans Pay fyrir einstaklinga og fyrirtæki, auk þess að reka markaðstorgið og bókunarkerfið Noona sem þjónustar um 1.200 fyrirtæki og yfir 150.000 notendur í hverjum mánuði. Hjá félaginu starfa um 80 sérfræðingar. Systurfélög þess innan Ása eru meðal annars Síminn, Öryggismiðstöðin, OK og Billboard.
Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.