Mögnum

FRAMKVÆMDASTJÓRI

Mögnum  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Hefur þú hefur brennandi áhuga á sjálfbærnimiðaðri verðmætasköpun og orkuskiptum?

EIMUR leitar að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða og þróa starfsemina.

Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Norðurlandi og mikill kostur ef viðkomandi getur hafið störf fljótlega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með daglegum rekstri
  • Stefnumótun og áætlanagerð
  • Ábyrgð á öflun nýrra verkefna
  • Verkefnastjórnun og eftirfylgni
  • Samskipti og tengsl við hagaðila
  • Markaðssetning og kynning á starfseminni
  • Ýmis önnur fjölbreytt verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
  • Reynsla af stjórnun og rekstri
  • Þekking og áhugi á orkumálum er kostur
  • Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur
  • Áhugi og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
  • Leiðtogahæfni og drifkraftur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Reynsla innan opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Góð tungumálakunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

EIMUR er samstarfsverkefni sem snýr að bættri nýtingu orkuauðlinda og aukinni grænni nýsköpun á Norðurlandi. Að verkefninu standa Landsvirkjun, Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur, Rarik, SSNE og SSNV.

Markmið EIMS

  • Stuðla að aukinni verðmætasköpun með sterkum stuðningi við nýsköpun og hátækni
  • Stuðla að grænni atvinnuuppbyggingu
  • Stuðla að bættri nýtingu auðlinda og innleiðingu hringrásarhagkerfis
  • Auka matvælaframleiðslu og áframvinnslu matvæla á svæðinu með það fyrir augum að auka verðmætasköpun
  • Fjölga möguleikum svæðisins til að takast á við áskoranir samtímans og gera svæðið leiðandi þegar kemur að samspili orku, umhverfis og samfélags með sjálfbærni og verðmætasköpun að leiðarljósi

Umsóknarfrestur er til og með  31. maí 2026

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Sótt er um starfið á  www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita

Sigríður Ólafsdóttir;  sigga@mognum.is

Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Mögnum

About Mögnum

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.

Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.

Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
1-10 employees
Headquarters
Akureyri, IS
Year Founded
2017
Website
mognum.is
Social Media