Landsnet

Forstöðumaður tækni og hönnunar

Landsnet  •  Reykjavík, IS (Onsite)  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leiddu tæknilega framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi

Landsnet leitar að öflugum og framsýnum leiðtoga sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.

Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka.

Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð.

Forstöðumaður tækni og hönnunar leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í þróun tæknilegra lausna, hönnunarforsendna og innleiðingu stafrænna tengivirkja fyrir flutningskerfi framtíðarinnar.

Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi sviðs Framkvæmda og eignastýringar og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa teymi tækni og hönnunar.
  • Móta stefnu, verklag og hönnunarforsendur fyrir flutningsmannvirki Landsnets.
  • Leiða innleiðingu og þróun stafrænna tengivirkja.
  • Leiða þróun mæla-, stjórn- og varnarbúnaðar í tengivirkjum.
  • Veita tæknilega ráðgjöf og stuðning við framkvæmda- og rekstrarverkefni.
  • Stuðla að stöðugum umbótum, nýsköpun og tæknilegri framþróun.
  • Byggja upp árangursdrifna menningu, starfsþróun og samvinnu innan teymisins.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af tengdri starfsemi og þekking á raforkukerfum er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og þróun teyma.
  • Færni og frumkvæði í að skapa og leiða öflugt sérfræðiteymi.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að leiða samstarf þvert á starfssvið.
  • Hæfni til að styðja fólk til árangurs og byggja upp sterka liðsheild.
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð hugsun í stjórnun starfsfólks og verkefna.

Ef þú hefur áhuga á að leiða öflugt sérfræðiteymi og taka þátt í að móta framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi viljum við gjarnan heyra frá þér.

Landsnet býður upp á skemmtilegt vinnuumhverfi og spennandi verkefni. Hjá okkur eru góð tækifæri til starfsþróunar, frábærir vinnufélagar og fjölbreyttir styrkir.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2026.

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn. Sótt er um starfið á landsnet.is eða hagvangur.is

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem hjá Hagvangi,  sverrir@hagvangur.is

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Landsnet

About Landsnet

Landsnet is a public company that owns and runs the electrical transmission system in Iceland, as well as handling its power system operation. All electrical lines and related constructions that transmit electrical energy with voltage of 66kV or higher are included in Landsnet‘s transmission system.

Industry
Manufacturing & Production
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Social Media