Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnendum sem vilja koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.
Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka. Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar.
Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Ef þú átt erindi og sterkan áhuga á vegferð með okkur í átt að raforkudrifinni verðmætasköpun á traustum grunni viljum við gjarnan heyra í þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Stefanía Hildur Ásmundsdóttir - stefania@hagvangur.is
Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.