Leiddu greiningar og rannsóknir sem móta framtíð raforkukerfisins
Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.
Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka.
Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð.
Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í framtíðarþróun flutningskerfisins. Teymið vinnur að kerfisgreiningum, líkanagerð og rannsóknum sem styðja við stefnumótun, fjárfestingarákvarðanir og uppbyggingu raforkukerfis Íslands til framtíðar.
Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Ef þú hefur áhuga á að leiða öflugt sérfræðiteymi og taka þátt í að móta framtíð flutningskerfis raforku á Íslandi viljum við gjarnan heyra frá þér.
Landsnet býður upp á skemmtilegt vinnuumhverfi, spennandi verkefni, dásamlegt mötuneyti og aðstöðu til líkamsræktar. Hjá okkur eru góð tækifæri til starfsþróunar, frábærir vinnufélagar og fjölbreyttir styrkir.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí 2026.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn. Sótt er um starfið á landsnet.is eða hagvangur.is Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem hjá Hagvangi, sverrir@hagvangur.is
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.

Landsnet is a public company that owns and runs the electrical transmission system in Iceland, as well as handling its power system operation. All electrical lines and related constructions that transmit electrical energy with voltage of 66kV or higher are included in Landsnet‘s transmission system.