Hagvangur

Forstjóri - Landsvirkjun

Hagvangur  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og vinnur yfir 70% allrar raforku á Íslandi úr endurnýjanlegum orkugjöfum. Hlutverk okkar er að hámarka verðmæti þeirra orkulinda sem okkur er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur fólks, víðs vegar um landið.

Landsvirkjun stendur á tímamótum. Ný stefna til ársins 2040 hefur verið mótuð og fram undan eru krefjandi og spennandi verkefni. Við ætlum að efla samkeppnishæfni og hagkvæmni í rekstri, byggja upp nýja orkuvinnslu í sátt við náttúru og samfélag, þróa viðskipti við núverandi og nýja viðskiptavini og nýta betur þau tækifæri sem felast í stafrænni þróun og starfsemi utan Íslands.

Við leitum að öflugum leiðtoga til að leiða Landsvirkjun inn í þetta nýja skeið í sögu fyrirtækisins.

Forstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri. Í samstarfi við stjórn, framkvæmdastjórn og annað starfsfólk hefur viðkomandi forystu um að innleiða nýja stefnu og efla menningu árangurs, trausts og ábyrgðar.

Forstjóri er jafnframt mikilvægasti talsmaður Landsvirkjunar út á við. Verkefni forstjóra er að gæta hagsmuna fyrirtækisins í hvívetna og byggja upp og viðhalda trausti í samskiptum við viðskiptavini, stjórnsýslu, nærsamfélög og aðra hagaðila.

Menntun og hæfni

  • Umtalsverð og farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
  • Leiðtogahæfni sem byggir á trausti, valddreifingu og því að laða fram það besta í fólki
  • Sannanlegur árangur af breytingastjórnun og innleiðingu stefnu
  • Reynsla af stærri fjárfestingum, fjármálum og samningagerð
  • Skilningur á samspili orkumála, atvinnulífs, stjórnmála og samfélags
  • Hæfni til að byggja upp traust og árangursrík samskipti við ólíka hagaðila
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
  • Þekking á orkumálum og innviðum
  • Reynsla af alþjóðlegu viðskiptaumhverfi er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og nöfn umsækjenda verða ekki birt opinberlega.

Nánari upplýsingar

Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media