Samskip Ísland

Öflugur starfsmaður á hafnarsvæði

Samskip Ísland  •  Onsite  •  12 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við óskum eftir að ráða öflugan starfsmann á hafnarsvæði okkar við Kjalarvog. Unnið er á tvískiptum vöktum á hafnarsvæði, sem og dagvinnu líka. Helstu verkefni snúa að lestun og losun skipa og meðhöndlun gáma á hafnarsvæði.

Hæfnikröfur starfsmanns á hafnarsvæði

  • I - Lyftararéttindi skilyrði
  • Íslensku og/eða enskukunnátta er skilyrði
  • Gott heilsufar og áhugi að vinna utanhúss
  • Geta til þess að vinna undir álagi
  • Stundvísi og jákvætt viðhorf

Starfsfólk á hafnarsvæði verða að hafa sterka öryggisvitund, getu til þess að vinna sjálfsstætt og hæfni í mannlegum samskiptum.

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreina sakaskrá. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí nk.

Nánari upplýsingar veitir Guðni Páll Sigurðarson, svæðisstjóri hafnarsvæðis í netfangið gudni.pall.sigurdarson@samskip.com

Samskip Ísland

About Samskip Ísland

Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem býður flutningalausnir og tengda þjónustu á landi, sjó og í lofti með hagkvæmni og sjálfbærni að leiðarljósi.

Félagið er eitt af stærri flutningafyrirtækjum í Evrópu með um 668 milljónir evra í veltu á ári og starfsstöðvar í 24 löndum í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku, Asíu og Ástralíu. Starfsmenn eru um 1.500 talsins um allan heim. Höfuðstöðvar Samskipa eru í Hollandi og frá stofnun þess á Íslandi árið 1991 hefur það stækkað hratt, bæði vegna innri vaxtar og kaupa á öðrum félögum.

Meginstarfsemi félagsins byggir á gámaflutningum í Evrópu, flutningum á Norður-Atlantshafi, hitastýrðum flutningum um allan heim ásamt flutningsmiðlun og stórflutningum í Evrópu.

Industry
Transportation & Logistics
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1991
Social Media