Icelandair leitar að öflugum aðila í starf flugumsjónarmanns í stjórnstöð Icelandair (OCC).
Um er að ræða tímabundið sumarstarf fyrir sumarið 2027 en vegna þjálfunar er gert ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í febrúar.
Flugumsjónarmenn starfa í stjórnstöð Icelandair, Operations Control Center, (OCC). Starf flugumsjónarmanna felst í því að undirbúa hvert flug sem farið er á vegum félagsins, gera flugáætlanir, safna saman veðurupplýsingum ásamt NOTAM upplýsingum og koma þeim til flugmanna fyrir hverja brottför.
Mikil og náin samvinna er við aðrar deildir innan OCC. Þar má nefna Maintenance Control, Daily Crew Operations og Ground Operations.
Unnið er í vaktavinnu, bæði dag- og næturvaktir á 5-5-4 vöktum.
Starfsstöð OCC er í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði.
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast eigi síðar 9. desember 2026
Kári Nielsson, Manager, karini@icelandair.is
Elmar Bergþórsson, People Manager, elmarb@icelandair.is

Icelandair is an international airline and the largest subsidiary of Icelandair Group, which in addition to its own route network handles flight operations for sister companies Loftleidir and Icelandair Cargo.
Icelandair offers an in-flight store, Saga Shop and operates the Icelandair Saga Club, expanding its relationship with customers.
The Icelandair hub is located at Reykjavik/Keflavik International Airport in Iceland.