Hagvangur

Finance Business Partner (Group Finance) - atNorth

Hagvangur  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

atNorth er í örum vexti og nú leitum við að öflugum Finance Business Partner til að taka að sér lykilhlutverk á fjármálasviði. Um er að ræða verkefni fyrir reynslumikinn aðila sem hefur áhuga á að hafa bein áhrif á stefnumarkandi ákvarðanir og framtíðarsýn fyrirtækisins.

Starfið býður upp á tækifæri til að vinna þvert á starfsemi atNorth, en viðkomandi ber ábyrgð á langtímaáætlanagerð félagsins og styður þannig beint við ákvarðanatöku stjórnenda, eigenda og lánveitenda.

Ef þú hefur áhuga á að hafa raunveruleg áhrif á fjárfestinga- og fjármögnunarstefnu vaxandi félags í spennandi atvinnugrein gæti þetta verið starfið fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða þróun og viðhald á fjárhagslíkani samstæðunnar
  • Drífa stefnumarkandi áætlanagerð og sviðsmyndagreiningar
  • Meta fjárfestingar, viðskiptatækifæri og lykilákvarðanir félagsins
  • Veita stjórnendum, eigendum og lánveitendum gagnadrifinn stuðning við ákvarðanir
  • Meta fýsileika fjármögnunarkosta og styðja við fjármögnunarferli
  • Samræma langtíma- og skammtímaspár og drífa umbætur á fjárhagslegum mælikvörðum
  • Byggja upp öflugri fjárhagslega innviði með umbótum á líkönum, gögnum og ferlum

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða í fjármálum, hagfræði, reikningshaldi eða skyldum greinum
  • Haldbær reynsla úr FP&A, Finance Business Partnering, fjármálaráðgjöf, fjárfestingarbanka eða Private Equity
  • Reynsla af gerð fjárhagslíkana, fjárfestingargreiningum og áætlanagerð
  • Hæfni til að miðla flóknum gögnum til stjórnenda
  • Mjög góð greiningarhæfni, Excel kunnátta og reynsla af ERP/EPM og BI lausnum
  • Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð, gagnrýnin hugsun
  • Sterk samskiptahæfni og geta til að hafa áhrif í krefjandi og síbreytilegu umhverfi

atNorth er leiðandi norrænt fyrirtæki á sviði gagnaversþjónustu sem býður upp á sjálfbæra og hagkvæma ofurtölvuþjónustu fyrir mörg af fremstu tæknifyrirtækjum heims. Höfuðstöðvar atNorth eru í Hafnarfirði en fyrirtækið rekur starfsemi þvert á Norðurlöndin. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins www.atnorth.com

Nánari upplýsingar

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir - stefania@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media