Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum þjónustufulltrúa til starfa í teymi tæknilegrar aðstoðar í þjónustuveri. Hlutverk þjónustufulltrúa er að aðstoða viðskiptavini sem hafa samband, við að greina og leysa tæknileg vandamál, veita upplýsingar og ráðgjöf. Teymið sinnir meðal annars málum sem tengjast neti, sjónvarpi, fastlínum og annari fjarskiptaþjónustu. Starfið krefst góðs tæknilegs skilnings og getu til að vinna markvisst að lausn mála.
Hvað höfum við að bjóða þér?
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 26.október 2026. Umsóknir verða rýndar um leið og þær berast.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á mannaudur@syn.is

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.