Reykjavik University

Ert þú orðheppinn textasmiður?

Reykjavik University  •  Onsite  •  9 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir orðheppnum textasmið á samskiptasvið háskólans sem hefur það hlutverk að vera leiðandi í skrifum á miðlum háskólans bæði á íslensku og ensku. Starfið hentar einstaklingi sem brennur fyrir fréttaskrifum og miðlun vísinda- og rannsóknastarfs, viðburða og alls þess sem snertir starfsemi HR. Textasmiður fer almennt með ritstjórn á útgefnu efni og á í samskiptum og samvinnu við fólk þvert á deildir og stoðsvið og tekur virkan þátt í markaðs- og kynningarstarfi samskiptateymisins.

Helstu verkefni:

  • Ritstjórn og skrif á texta fyrir ytri og innri vefi HR.
  • Umsjón með skrifum frétta og fréttatilkynninga.
  • Þátttaka í hlaðvarpi HR.
  • Umsjón með gerð kynningarbæklinga háskólans og ritstjórn þeirra.
  • Yfirlestur á texta á íslensku og ensku og ráðgjöf til starfsfólks HR.
  • Textagerð fyrir markaðsefni.
  • Þátttaka í daglegu markaðs- og kynningarstarfi samskiptasviðs.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í íslensku, ensku eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af frétta- og greinaskrifum og ritstjórn.
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu.
  • Áhugi og þekking á háskólaumhverfinu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og vilji til að vinna í hóp.
  • Hæfileiki til að hugsa út fyrir boxið og leita nýrra lausna.

Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Háskólans í Reykjavík, mannaudur@ru.is, og Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta, asthildurg@ru.is

Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknarháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.

HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.700 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.

Reykjavik University

About Reykjavik University

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Website
ru.is
Social Media