Hagvangur

Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir

Hagvangur  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir er laust til umsóknar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, skv. lögum nr. 76/2026 um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

Helstu verkefni Miðstöðvar um öryggisráðstafanir

Miðstöð um öryggisráðstafanir tekur formlega til starfa 1. apríl 2027 þegar lög um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn taka jafnframt gildi. Verkefni miðstöðvarinnar verða eftirfarandi:

  • Miðstöð um öryggisráðstafanir sér um framkvæmd öryggisráðstafana og annast önnur verkefni í samræmi við ákvæði ofangreindra laga og stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru samkvæmt þeim.
  • Miðstöðin tekur við dómum og úrskurðum um öryggisráðstafanir til framkvæmdar og skráningar frá ríkissaksóknara.
  • Miðstöðin hefur eftirlit og umsjón með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum, sem og umsjón með einstaklingum sem gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum. Hún fer jafnframt með eftirlit með öryggisgæslustöðum sem reknir eru á grundvelli samnings við sveitarfélög og einkaaðila.
  • Miðstöðin veitir ráðgjöf og faglegan stuðning öllum þeim aðilum sem veita skjólstæðingum þjónustu samhliða öryggisráðstöfunum. Miðstöðin veitir viðeigandi hagaðilum jafnframt fræðslu um málefni stofnunarinnar og skjólstæðinga hennar.

Helstu verkefni og ábyrgð forstjóra

Ákvæði I til bráðabirgða í ofangreindum lögum hefur þegar öðlast gildi og skal ráðherra samkvæmt . því hefja undirbúning að stofnun Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, meðal annars með því að skipa forstjóra hennar. Miðað er við að skipað verði í embættið eins fljótt og auðið er og eigi síðar en 1. febrúar 2027.

  • Forstjóri undirbýr starfsemi stofnunarinnar, meðal annars með því að ganga frá ráðningu starfsfólks og gera ráðstafanir til þess að gildandi samningar um öryggisráðstafanir færist yfir til miðstöðvarinnar við gildistöku laganna í apríl nk.
  • Forstjóri vinnur með hlutaðeigandi ráðuneytum að húsnæðismálum nýrrar stofnunar.
  • Forstjóri kemur að öðrum verkefnum á undirbúnings- og innleiðingartímanum, svo sem gerð stjórnvaldsfyrirmæla og samhæfingu gagnvart þjónustukerfum.

Forstjóri veitir miðstöðinni forstöðu og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar. Hann sér til þess að starfsemi miðstöðvarinnar sé í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli, reglugerðir og erindisbréf sem ráðherra setur.

Hæfniskröfur

Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum uppbyggingu og þróun nýrrar stofnunar, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri framkvæmd öryggisráðstafana.

Leitað er að einstaklingi sem býr yfir:

  • Háskólaprófi sem nýtist í starfi.
  • Þekkingu og reynslu sem nýtist á starfssviði miðstöðvarinnar
  • Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Farsælli reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumörkun.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum.
  • Reynslu og hæfni til að koma fram opinberlega og miðla upplýsingum.
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Ráðherra skipar forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir til fimm ára í senn. Engan má skipa oftar en tvisvar sinnum í embættið.

  • Starfshlutfall er 100%.
  • Um laun forstjóra fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
  • Áður en forstjóri Miðstöðvar um öryggisráðstafanir er skipaður skal hann, að fengnu samþykki hans, undirgangast bakgrunnsskoðun, skv. 9. gr. laga nr. 76/2026 um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember nk. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað viðkomandi telur sig geta lagt af mörkum í embætti forstjóra.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Við skipun í embætti forstjóra skal ráðherra skipa þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda. Ráðherra getur sett nefndinni reglur um mat á umsóknum. Nefndin skal láta ráðherra í té skriflega rökstudda umsögn um hæfni umsækjenda.

Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Sverrir Briem, sverrir @hagvangur.is.

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media