Garðabær

Eignasjóður Garðabæjar - verkefnastjóri

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  17 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Eignasjóður leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi sviði framkvæmda til að leiða fjölbreytt viðhalds- og framkvæmdaverkefni.

Eignasjóður heldur utan um allar eignir Garðabæjar. Auk þess að stýra hönnun, undirbúningi og eftirliti með viðhaldi og framkvæmdum felur starfsemin einnig í sér verkefni sem varða breytingar og endurbætur á eldra húsnæði og aðstöðu.

Helstu verkefni

  • Verkefnisstjórnun viðhalds og framkvæmda
  • Gerð kostnaðar- og tímaáætlana
  • Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna
  • Umsjón með uppgjöri verkefna
  • Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði byggingartæknifræði, byggingarfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi*
  • Reynsla og þekking á viðhaldi eldra húsnæðis
  • Reynsla af hönnun og verklegum framkvæmdum
  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Metnaður, skipulagsfærni, stundvísi og öguð vinnubrögð

*Til greina kemur að ráða aðila með aðra menntun sem nýtist í starfi ásamt umfangsmikilli reynslu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 12. júni 2026

Nánari upplýsingar um starfið gefur Kjartan Sævarsson deildarstjóri eignarsjóðs í síma 621-4585 eða með því að senda tölvupóst á kjartansae@gardabaer.is

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown