Vilt þú vinna á líflegum vinnustað?
N1 Egilsstöðum óskar eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum starfsmönnum til sumarstarfa
Um er að ræða starfsfólk í almenna afgreiðslu, aðstoð í eldhúsi og uppvask.
Þjónustustöðin okkar er fjörugur vinnustaður og iðar af mannlífi frá morgni til kvölds.
Við leitum að þjónustufúsu fólki er lipurt í mannlegum samskiptum.
Stundvísi, reglusemi, snyrtimennska og kurteisi eru skilyrði.
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur og góð íslenskukunnátta.
Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri
Fríðindi í starfi:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Guðrún Sveinsdóttir hjá ragnhildurg@n1.is
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með að vinna í hóp.

N1 er orku- og þjónustufyrirtæki fyrir fólk, farartæki og fyrirtæki. N1 leggur viðskiptavinum lið með þéttu neti þjónustustöðva og verslana þar sem boðið er upp á fjölbreyttar veitingar og markvisst vöruúrval auk bíla- og rekstrarvara. Þar að auk býður N1 upp á hjólbarða- og smurþjónustu, sem og bílaviðgerðir víða um land.