Háskólinn í Reykjavík auglýsir lausa stöðu doktorsnema við lagadeild í tengslum við samnorrænt og evrópskt verkefni um gervigreind. Leitað er að metnaðarfullum lögfræðingi sem hefur áhuga á að setja mark sitt á sívaxandi réttarsvið sem er í örri þróun og taka þátt í þverfaglegu samstarfi sem miðar að samfélagslegum ávinningi.
Um stöðuna:
Staðan er hluti af AI Antenna rannsóknarverkefninu sem Háskólinn í Reykjavík á aðild að. Doktorsneminn mun sinna rannsókn sem er hluti af verkefninu og miðar að því að kortleggja og greina áhrif evrópsk regluverks um gervigreind á íslenskan rétt með áherslu á persónuvernd, gagnaöryggi og heilbrigðisrétt.
Rannsóknin verður unnin í nánum tengslum við fræðimenn á öðrum fræðasviðum, sérstaklega tölvunarfræði og stafrænni heilbrigðistækni.
Gert er ráð fyrir að rannsóknin verði unnin og skilað á þremur árum í samræmi við viðmið Háskólans í Reykjavík um doktorsnám.
Helstu verkefni:
Hæfiskröfur:
Nauðsynlegt er að uppfylla eftirfarandi hæfiskröfur:
Æskilegt er að uppfylla eftirfarandi hæfiskröfur:
Umsóknarferli:
Umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilsskrá og ritaskrá eða ritdæmi frá umsækjanda. Þá skal í rannsóknartillögu sem fylgir umsókninni koma fram fagleg sýn umsækjanda á þróun og inntak evrópsks regluverks um gervigreind auk draga að rannsóknaráætlun sem tekur mið af almennt fyrirliggjandi upplýsingum um AI Atenna verkefnið.
Í umsóknarferlinu munu umsækjendur undirgangast próf og fara í viðtal. Ákvörðun um stöðuna verður tekin á grundvelli heildarmats allra umsóknargagna.
Tekið verður við umsóknum þar til staðan hefur verið fyllt og farið verður yfir umsóknin þegar þær berast.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veita leiðbeinendur verkefnisins í lagadeild Háskólans í Reykjavík: Dr. Gunnar Þór Pétursson deildarforseti (gunnarthor@ru.is) og Dr. María Rún Bjarnadóttir (mariarb@ru.is)
Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.600 í sjö deildum og starfsfólk er um 330 talsins, auk 350 stundakennara.
