The City of Reykjavik

Dönskukennari

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  12 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Víkurskóli er staðsettur í norðanverðum Grafarvogi og er unglingaskóli fyrir 8.-10. bekk. Skólinn er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á að þróa nýjar lausnir í námi og kennslu, öfluga teymisvinnu og virka og lýðræðislega þátttöku nemenda skólastarfinu. Í Víkurskóla er skylda að starfa eftir aðferðum leiðsagnarnáms og því mikilvægt að hafa bæði mikla reynslu og þekkingu af leiðsagnarnámi.

Í Víkurskóla er meginstefið nýsköpunarhugsun, lausnaleit, tækni og teymisvinna sem og leiðsagnarnám og uppeldi til ábyrgðar. Víkurskóli er með regnbogavottun frá Reykjavíkurborg og er þátttakandi í grænum skrefum borgarinnar. Leitað er að skapandi einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með unglingum, starfa í teymum, þróa og prófa nýja kennsluhætti og taka þátt í hönnun og mótun skóla með skapandi hugsun að leiðarljósi.

Óskað er eftir kennurum með dönsku sem sérgrein.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfsteymi
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið dönskukennari
  • Góð þekking og mikil reynsla af leiðsagnarnámi
  • Hæfni til að vinna með unglingum
  • Lipurð í samskiptum, hæfni og áhugi á að vinna í teymum og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Hæfni og þekking að búa til námsefni sem hæfir unglingum sem byggt er á aðferðum um leiðsagnarnám.
  • Góð íslenskukunnátta - kröfur um C1 samkvæmt Evrópska tungumálastaðlinum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags

grunnskólakennara.

Umsókknarfrestur er 29. maí 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þuríður Óttarsdóttir skólastjóri í síma 411-7800 á skrifstofutíma og í tölvupósti thuridur@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media