Laugalækjarskóli er annar af hverfisskólum Laugarneshverfis, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 420 nemendur í 7. – 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, eldmóður og gleði. Stöðugt er stefnt að því að byggja upp öfluga, ábyrga og sjálfstæða einstaklinga. Þannig er skólinn réttindaskóli UNICEF, hefur hlotið regnbogavottun og vinnur einnig eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga. Í kennsluskipulagi má finna ríka áherslu á þverfaglega verkefnavinnu, upplýsingatækni, námsmöppur nemenda og markvissa ígrundun þeirra um eigið nám, samþættingu námsgreina, öfluga lífsleiknikennslu og öfluga stuðningskennslu. Skólinn býr að ríkum umbótavilja og hefð hefur skapast fyrir lýðræðislegri skólaþróun og samvirkri forystu starfsmanna.
Félagsmiðstöðin Laugó er staðsett í húsnæði skólans og vinnur með skólanum að félagsstarfi barna og unglinga í Laugarneshverfi. Þá starfa Skólahljómsveit Austurbæjar og Frístundamiðstöðin Hof einnig í húsnæði Laugalækjarskóla. Um árabil hefur skólinn átt gott samstarf við Háskóla Íslands og Háskólann í Þrándheimi um menntun og þjálfun kennaranema.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026.
Umsókn fylgi leyfisbréf, ferilskrá og annað er málið varðar.
Laun eru samkvæmt kjarasamnigi FG og SNS. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veita Jón Páll Haraldsson skólastjóri ( jon.pall.haraldsson@reykjavik.is) og Sólveig Hrafnsdóttir aðstoðarskólastjóri ( solveig.hrafnsdottir@reykjavik.is), sími 411 7900.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.