The City of Reykjavik

Deildarstjóri stoðþjónustu

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  5 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 360 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 60.

Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með Byrjendalæsi og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.

Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.

Við leitum að framsæknum einstaklingi sem hefur færni til að leiða stoðþjónustu skólans í öflugu stjórnendateymi veturinn 2026 - 2027. Deildarstjóri gegnir mikilvægu hlutverki í að móta góðan skólabrag og samstarfsvettvang skóla og samfélags. Deildarstjóri tekur þátt í mótun framtíðarstefnu skólans í samræmi við aðalnámskrá, menntastefnu Reykjavíkurborgar og hugmyndafræði skólans.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir hennar endurspegli það margbreytilega samfélag sem hún er.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Skipuleggja og stýra fyrirkomulagi stoðþjónustu fyrir nemendur með sérþarfir.

- Vera í forystu um gerð einstaklingsnámsskráa og vera ráðgefandi aðili við gerð þeirra.

- Leiðbeina stuðningsfulltrúum í samstarfi við umsjónarkennara.

- Gera stundatöflur stuðningsfulltrúa í samráði við deildarstjóra og kennara.

- Stýra fundum nemendaverndarráðs og lausnateymis og vera í samskiptum við fulltrúa.

- Aðstoða umsjónarkennara til að vera í samstarfi við heimili, skóla og stoðþjónustu vegna nemenda með sérþarfir.

- Vera tengiliður samþættingar.

- Halda utan um niðurstöður greininga/skimana í samráði við deildarstjóra fagstarfs, skipuleggja og fylgja eftir inngripum í kjölfar skimana og greininga.

- Hafa eftirfylgd með sértækum verkefnum innan stoðþjónustunnar sem tengjast nemendum.

Hæfniskröfur

- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari og kennslureynsla í grunnskóla.

- Menntun á sviði stjórnunar og sérkennslu æskileg.

- Reynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu í menntastofnun.

- Afbragðs færni í samskiptum við nemendur, foreldra og samstarfsfólk.

- Frumkvæði, leiðtogahæfni, lausnamiðun og góðir skipulagshæfileikar.

- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með börnum.

- Mjög góð íslenskukunnátta og færni til að miðla upplýsingum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir, skólastjóri í síma 697-7733 eða maria.helen.eidsdottir@reykjavik.is

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026 og ráðið er í 100% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til að með 17. júní nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun, fyrri störf og stjórnunarreynslu ásamt kynningarbréfi umsækjenda þar sem einnig koma fram hugmyndir um þróun skólastarfs.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media