Samgöngustofa leitar að öflugum stjórnanda í starf deildarstjóra siglingadeildar. Helstu verkefni deildarinnar eru áhafnamál, útgáfa skírteina og vottorða, siglingavernd, hafnríkiseftirlit og öryggi í höfnum.
Deildarstjóri skipadeildar ber ábyrgð á daglegum rekstri, starfrænni vegferð, faglegri þróun og árangri deildarinnar og tryggir að starfsemin fylgi lögum, reglum og verklagsreglum Samgöngustofu. Hann starfar innan ramma stefnu og leiðbeininga framkvæmdastjóra siglingasviðs og leggur sitt af mörkum til að viðhalda ábyrgum rekstri með skilvirkni, hagkvæmni og samfélagslegum sjónarmiðum að leiðarljósi.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi um málefni sviðsins, sem hefur brennandi áhuga á stjórnun og forystu, leggur áherslu á samvinnu og vill byggja upp öfluga liðsheild og eftirsóttan vinnustað. Starfshlutfall er 100%.
Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.
Inga S. Arnardóttir - inga@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.