The City of Reykjavik

Deildarstjóri - Leikskólinn Nóaborg

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  16 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Nóaborg, Stangarholti 11, óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf. Um er að ræða deildarstjórastöðu á deild yngri barna sem þar sem dvelja 16 börn en yngstu 32 börnum leikskólans er dreift jafnt á tvær yngri deildir og er mikil og góð samvinna á milli deildanna.

Nóaborg er fjögurra deilda leikskóli og þar dvelja að jafnaði 74 börn. Í leikskólanum eru tvær eldri deildir með 21 barni á hvorri deild og svo tvær yngri deildir með 16 börnum á hvorri deild. Mikil endurnýjun á húsnæði leikskólans hefur átt sér stað á undanförnum árum og er öll vinnuaðstaða góð.

Leikskólinn er staðsettur rétt ofan við Hlemm og í næsta nágrenni við Klambratún sem býður upp á mikla möguleika varðandi leik og starf. Við leikum okkur með læsi og stærðfræði og vinnum markvisst með Lubba námsefnið. Þá erum við í auknum mæli að vinna með flæði á milli deilda. Næsta vetur munum við vera með verkefnastjóra í sköpun og er það tilraunaverkefni.

Einkunnarorð Nóaborgar eru: Leikum-Lærum-Njótum

Helstu verkefni og ábyrgð

-Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra

· Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni

· Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar

· Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun

· Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur

-Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara

· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg

· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

· Góð íslenskukunnátta

· Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

-Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi:

  • Sundkort
  • Menningarkort og bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Frítt fæði
  • Forgangur að leikskólaplássi fyrir starfsmannabörn

Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/félags leikskólakennara.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á netfangið anna.margret.olafsdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media