The City of Reykjavik

Deildarstjóri í Brákarborg

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  23 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leggjum áherslu á sjálfstæði barna og starfsfólks og vinnum með jákvæðan aga þar sem LAUSNAHRINGURINN er okkar aðal verkfæri. Unnið er eftir hugmyndafræði Caroline Pratt með einingakubba og John Dewey með áherslu á að læra af reynslunni.

Brákarborg er Hinseginvænn starfsstaður sem hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar og þar er fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum fagnað.

Einkunnarorð Brákarborgar eru:

AGI - VIRÐING - UMHYGGJA

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf með möguleikann á að safna fyrir t.d. jólafrí, páskafrí og vetrarfrí
  • Heilsuræktarstyrkur

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni deildarstjóra eru að skipuleggja starfið í samstarfi við aðra stjórnendur. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir foreldrasamskiptum og velferð barna og starfsfólks deildarinnar. Hann er einnig ábyrgur fyrir samskiptum við verkefnastjóra og sérkennslustjóra. Einnig sér deildarstjóri um að halda utan um mönnun sinnar deildar og skipulagi vakta og undirbúningstíma.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er mikilvæg
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Færni til að nýta sér tölvur í starfi
  • Góð íslenskukunnátta (a.m.k. C1 skv. evrópska tungumálarammanum)

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi séttarfélags.

Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýsu samþykki umsækjenda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.

Starfið er laust frá 5. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sólrún Óskarsdóttir skólastjóri eða María Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-3120 og í tölvupósti brakarborg@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media