The City of Reykjavik

Deildarstjóri

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við látum drauma barna rætast! Viltu bætast í samheldin starfsmannahóp á Hofi?

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hof á deild með elstu og næstu elstu börnunum. Leikskólinn er í Laugardalnum og liggur vel við samgöngu- og reiðhjólaleiðir. Í skólanum eru sex deildir og þar fer fram öflugt starf í samheldnum starfsmannahópi. Lögð er áhersla á skapandi starf, fjölmenningu, útikennslu og lýðræði. Skólinn hefur unnið að þróunarverkefni um sjálfseflingu og félagsfærni og hefur hlotið Regnbogavottun. Einkunnarorð skólans eru virðing, gleði og sköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara nauðsynlegt
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Stundvísi og faglegur metnaður
  • Frumkvæði, áhugi og vilji til að leita nýrra leiða
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Góð íslenskukunnátta- C1 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar
  • Ókeypis fæði á vinnutíma
  • Samgöngustyrkur
  • Ókeypis sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningarkort sem veitir aðgang að listasöfnum og bókasafnskort

Frekari upplýsingar um starfið

Upplýsingar um starfið veita Særún Ármannsdóttir, leikskólastjóri og Stella Marteinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 411-6848 eða á netfangið hof@reykjavik.is.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Staðan er laus um áramótin eða eftir samkomulagi og um er að ræða framtíðar starf.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media