The City of Reykjavik

Deildarstjóri

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að metnaðarfullum deildarstjóra í ungbarnaleikskóla við Bríetartún

Leikskólinn er fjögra deilda með 15 börn á deild. Við leitum að leikskólakennara í teymið sem hefur metnað og áhuga í að þróa áfram starf á yngsta skólastiginu. Mikil áhersla er á markvissa málörvun, listsköpun, hreyfingu og sjálfbærni.

Leikskólinn hefur unnið að þróunarverkefni með Barnasáttmálann og er réttindaskóli. Framfarir og gleði barnanna eitt af því sem gera starfið ómetanlegt.

Einkunnarorð leikskólans eru: Umhyggja - gleði – vinátta

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að skipuleggja starf deildarinnar í samstarfi við leikskólastjóra
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða leyfisbréf kennara. Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta íslenskukunnátta á a.m.k. stigi C1 https://www.coe.int/en/web/portfolio/self-assessment-grid
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi:

  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna
  • Lægri leikskólagjöld í Reykjavík fyrir starfsmenn
  • 36 - 38 stunda vinnuvika
  • Sundkort/Menningarkort, Samgöngustyrkur, Heilsustyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% stöðu sem er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélaga.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Ben Blöndal, leikskólastjóri, sími 411-6781, tölvupóstur anna.blondal@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media