Miðborg er 8 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Barónsstíg 34.
Við leitum að deildarstjóra á nýja deild í Vörðuborg. Deildarstjóra sem er tilbúin að taka þátt í spennandi þróunarverkefni en Miðborg er hluti að Heillaspor (Nurture) innleiðingaverkefni Reykjavíkurborgar.
Mikilvægt er að deildarstjórinn sé með opið hugarfar og hafi áhuga eða reynslu að því að vinna eftir hugmyndafræði sálfræðingsins Mihaly Csikszentmihalyi um flæði.
Nálægðin við miðbæinn ýtir undir fjölmenningarlegt, fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar fram undan. Við leggjum áherslu á sjálfssprottinn leik þar sem hugmyndafræðin um flæði er í forgrunni. Að mynda góð tengsl við börn og foreldra skiptir okkur miklu máli svo öll getum við blómstrað í öruggu umhverfi.
Ráðið er í starfið eftir sumarlokun.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ösp Jónsdóttir leikskólastjóri á midborg@rvkskolar.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.