The City of Reykjavik

Dalskóli umsjónarkennari á yngsta stigi

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili.

Í skólanum eru tæplega 500 börn á grunnskólaaldri. Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal og hóf starfsemi haustið 2010.

Í Dalskóla er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er Dalskóli þróunarskóli í leiðsagnarnámi.

Krafa er gerð um kennsluréttindi, góða íslenskukunnáttu, mjög góða samskiptafærni og hæfni í teymisvinnu.

Staðan er laus 1. desember eða fyrr.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Menntun og hæfni til almennrar kennslu með fjölbreyttar þarfir nemendahóps.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með ungu fólki.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort- bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Valdimarsdóttir, skólastjóri í netfanginu: audur.valdimarsdottir@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media