Advania Ísland

Business Central ráðgjafi með þekkingu á tollamálum

Advania Ísland  •  Onsite  •  4 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum ráðgjafa sem vill taka virkan þátt í umbreytingu fyrirtækja með Microsoft Dynamics 365 Business Central í skýinu. Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, gervigreindarvirkni og tækni sem er stöðugt að þróast.

Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur þekkingu á tollamálum, innflutningsferlum og vöruflæði samhliða reynslu af Business Central.

Sem ráðgjafi sérðu um þjónustu og daglega sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina. Jafnframt tekur þú þátt í innleiðingar- og uppfærsluverkefnum þar sem áhersla er lögð á skilvirka ferla tengda fjármálum, birgðum, innflutningi og tollameðferð. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og gefandi.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, rekstrarfræði eða sambærilegt nám
  • Hefur reynslu og góða þekkingu á fjárhags- og rekstrarkerfum, sérstaklega Microsoft Dynamics 365 Business Central / Dynamics NAV
  • Hefur þekkingu á tollamálum, innflutningsferlum eða vöruflæði
  • Ert skipulögð/lagður, sýnir frumkvæði og ert sjálfstæð/ur í vinnubrögðum
  • Ert jákvæð/ur, býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hefur áhuga á þróun ferla, sjálfvirknivæðingu og nýrri tækni

Að auki er kostur ef þú:

  • Hefur reynslu af sambærilegu ráðgjafastarfi
  • Hefur góða tækniþekkingu og getu til að setja þig inn í ný kerfi
  • Hefur reynslu af samþættingum eða verkefnum tengdum tollakerfum og flutningsaðilum
  • Hefur unnið með innleiðingum eða uppfærslum á ERP kerfum

Hjá okkur færðu:

  • Fjölbreytt og spennandi verkefni
  • Tækifæri til að þróast í ört vaxandi tækniumhverfi
  • Aðgang að nýjustu lausnum Microsoft
  • Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Öflugt teymi sérfræðinga og góðan starfsanda

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 10. júní 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri Business Central ráðgjöf, gudrun.johannsdottir@advania.is / 4409000.

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media