Laus er til umsóknar 55-60% staða textílkennara í Brekkuskóla. Um er að ræða tímabundna stöðu skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra.
Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra.
Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is
Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Mikilvægt er að einnig komi fram hugmyndir umsækjenda og sýn á kennarastarfið og hvernig hann sé starf sitt sem kennara þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri í síma 414-7900, netfang: johannam@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2026.
