Akureyrarbær

Brekkuskóli: Stuðningsfulltrúi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við Brekkuskóla er laus 60 – 100 % staða stuðningsfulltrúa. Vinnutími er á bilinu 8:00 – 16:00. Upphafsdagur ráðningar er 15. ágúst 2026. Ráðið er í stöðurnar til skólaársins með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra. Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunar stefnunni Uppeldi til ábyrgðar

Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is

Helstu verkefni eru:

Starf stuðningsfulltrúa er fjölbreytt og felur í sér aðstoð við nemendur og kennara.

Hæfnis- og menntunarkröfur:

  • Æskilegt að hafa lokið stuðningsfulltrúanámi
  • Hefur áhuga á og reynslu af að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn.
  • Hefur til að bera góða samskiptahæfni.
  • Er dugleg/ur
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Stundvísi og reglusemi.
  • Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum, og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og reynslu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri í síma 414-7900 eða á netfanginu johannam@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown