Í Brekkuskóla er laus til umsóknar 70% staða frístundafulltrúa í grunnskóla. Um er að ræða ótímabundið starf og vinnutíminn er frá kl. 11:00 til 16:15. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra.
Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunar stefnunni Uppeldi til ábyrgðar
Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingum sem eiga auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hafa mikinn metnað, eiga auðvelt með öll samskipti og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Frístundafulltrúi fer fyrir daglegu starfi frístundar fyrir börn í 1. - 4. bekk grunnskóla og stuðlar að velferð og hagsmunum þeirra nemenda sem hann hefur umsjón með.
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri í netfanginu johannam@akureyri.is eða í síma 414-7900.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2026.
