Við Brekkuskóla er laus til umsóknar staða félagsmiðstöðvarfulltrúa. Um er að ræða 100% ótímabundið starf.
Vinnutími er breytilegur, dag-, kvöld- eða helgarvinna.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra.
Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is
Félagsmiðstöðvarfulltrúi er starfsmaður grunnskóla og starfar innan málaflokks forvarna- og frístunda. Markmið innan málaflokksins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem virkni og forvarnir eru höfð að leiðarljósi. Viðfangsefni eru forvarnaverkefni og virkniúrræði sem stuðla að velferð nemenda á mið- og unglingastigi. Í því felst m.a. að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni og stuðning sem höfðar til ólíkra hópa.
Forvarnarteymi skóla skipuleggur og útfærir forvarnarfræðslu út frá stöðu forvarnarmála og þörfum hverju sinni. Félagsmiðstöðvarfulltrúi situr í forvarnarteymi og kemur forvarnarfræðslu til framkvæmdar.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda, menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi félagsmiðstöðvafulltrúa.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri, netfang johannam@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026.
