Garðabær

Bæjarból - leikskólakennari/leikskólasérkennari 50%/(100%)

Garðabær  •  Garðabær, IS (Onsite)  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara til að sinna stuðning við barn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra.

Leitað er eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100% starf, 50% leikskólasérkennara og 50% sem leikskólakennari

Leikskólinn er fjögurra deilda og þar eru börn á aldrinum 1- 5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.

Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að sinna barni með sérþarfir
  • Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
  • Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfi sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi fyrir starfsmenn Bæjarbóls:

  • Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er 2 klukkustundum á viku safnað upp í frídaga.
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánudaga-fimmtudaga og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Fimm skipulagsdagar á ári

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf

Umsóknarfrestur er til og með 13.nóvember 2026

Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri í gegnum tölvupóst á baejarbol@baejarbol.is / harpathorg@baejarbol.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá

Garðabær

About Garðabær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown