Bifvélavirki óskast til DS Lausna
DS Lausnir leitar að metnaðarfullum og öflugum bifvélavirkja til starfa. Fyrirtækið sérhæfir sig í stærri hífingar- og flutningsverkefnum ásamt leigu, þjónustu og sölu á byggingakrönum, kranabílum, vörubílskrönum og tengdum búnaði.
Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi þar sem unnið er með öflug tæki og sérhæfðan búnað.
Helstu verkefni
Hæfniskröfur
DS lausnir er stofnað árið 2002 með áherslu á þjónustu við byggingariðnaðinn. Fyrritækið þjónustar, leigir út og selur byggingarkrana, bílkrana, vörubílakrana og rekur flota tækja sem styðja við þá starfssemi. Hjá félaginu starfa nærri 40 starfsmenn og sinnir fyrirtækið verkefnum víðsvegar um landið og erlendis.
DS lausnir er í eigu Fagkaupa ehf. Hjá Fagkaupum starfa um 350 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, á Grundartanga, Selfossi og Akureyri.
DS lausnir eru með höfuðstöðvar sínar á Ásvöllum í Hafnafirði.
Frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.dslausnir.is og einnig á www.fagkaup.is
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Sendu umsókn og ferilskrá í gegnum Alfreð og í gegnum heimasíðu Fagkaupa
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.dslausnir.is

Fagkaup er leiðandi fyrirtæki í sölu, þjónustu og viðskiptaþróun á iðnaðar-, veitu- og byggingarvörumarkaðnum á Íslandi.
Fagkaup styður við uppbyggingu innviða í íslensku atvinnu- og efnahagslífi með virðisaukandi vörum og framúrskarandi þjónustu.
Fagkaup samanstendur af nokkrum mismunandi rekstareiningum, hvert með sína eigin sögu en byggir á sterkum grunni Johan Rönning, sem auk þess að vera leiðandi í sölu og þjónustu á raflaganaefni og rafbúnaði til fagmanna, hefur allt frá árinu 2007 við sameiningu systurfélaga sinna rekið öfluga stoðþjónustu við þær einingar ásamt öðrum rekstrareiningum sem bæst hafa við eftir því sem árin liðu. Rekstrareiningarnar eru 11 talsins; Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, Áltak, S. Guðjónsson, Ísleifur, Varma og vélaverk, KH Vinnuföt, Fossberg, Hagblikk og Þétt.