The City of Reykjavik

Aðstoðarforstöðumaður í félagsmiðstöðina Öskju

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  18 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Frístundamiðstöðin Kringlumýri óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa í félagsmiðstöðina Öskju sem staðsett verður í Korpuskóla frá og með haustinu 2026.

Frístundamiðstöðin Kringlumýri starfrækir frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju við Klettaskóla og Korpuskóla. Gulahlíð er fyrir börn í 1.-4.bekk, Hekla er fyrir börn og unglinga í 5.-7.bekk og Askja er fyrir unglinga 8.-10.bekk.

Markmið og tilgangur starfs

Að veita fötluðum börnum, unglingum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna og unglinga með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna og unglinga með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í frístundastarfinu. Sjá skal til þess að öll börn og unglingar njóti jafnræðis óháð uppruna, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, kynferði, kynhneigð, aldri, efnahag, ætterni, fötlun, heilsufari eða annarri stöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð í starfi

- Umsjón með skipulagningu á faglegu innra starfi frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar í samráði við forstöðumann, deildarstjóra og starfsfólk.

- Skrá daglega viðveru barna og unglinga, hópa eða klúbbastarf, og lengda viðveru s.s. á foreldradögum, starfsdögum, jóla- og páskafríum.

- Verkaskipting milli starfsfólks í samráði við forstöðumann.

- Staðgengill forstöðumanns.

Menntunar- og hæfniskröfur

- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar,s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.

- Leyfisbréf þroskaþjálfa.

- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.

- Reynsla af starfi með fötluðum börnum og unglingum.

- Reynsla af félags- og tómstundastarfi.

- Skipulagshæfileikar og hæfni i samskiptum.

- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

- Almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta.

- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

- Sundkort.

- Stytting vinnuviku.

- Samgöngusamningur.

Krafist er að einstaklingur sé með hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Brynjar Orri Bjarnason

Tölvupóstur

brynjar.orri.bjarnason@reykjavik.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media