Vilt þú vera með okkur í spennandi vegferð í nýju þjónustuúrræði fyrir aldraða í glæsilegri starfsstöð Heilsuverndar að Urðarhvarfi 16?
Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing óskar eftir að ráða aðstoðarfólk í eldhús til starfa. Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoð við almenn eldhússtörf eftir þörfum hverju sinni
- Aðstoðar við frágang vöru og þrif í eldhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af störfum í eldhúsi er æskileg
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2026. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í störfin óháð kyni.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurðsson yfirmatreiðslumaður (snorri@hv.is).
Heilsuvernd samstæðan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Því hver dagur er dýrmætur

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is