Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sóltúni Sólvangi í Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlutfalli í dagvinnu. Gott ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hefja sinn stjórnunarferil í stuðningsríku og hlýlegu umhverfi.
Við bjóðum upp á metnaðarfullt og fjölbreytt starf í faglegu og stuðningsríku umhverfi. Í Sóltúni Sólvangi starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúanna.
Sóltún Sólvangi er hjúkrunarheimili í hjarta Hafnarfjarðar með 71 einstaklingsíbúð. Heimilið skiptist í heimilislegar einingar með 10–11 íbúum í hverri, þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Umsóknum er svarað um leið og þær berast!
Nánari upplýsingar veitir Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður á netfangið fjola@soltun.is
