Endurhæfingardeild Hrafnistu Nesvöllum óskar eftir að ráða iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara í aðstoðardeildarstjórastöðu.
Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans, aðstoðar með ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildarinnar auk hefðbundinna sjúkraþjálfunarstarfa.
Um er að ræða fjölbreytt starf í þágu íbúa sem krefst sjálfstæðra vinnubragða, frumkvæðis og framúrskarandi samskiptahæfni.
Um 80-100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Hrafnista rekur sjö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur og Nesvellir.
Markmið Hrafnistu er að veita framúrskarandi þjónustu til þess að íbúar og aðrir þjónustuþegar upplifi öryggi, traust og vellíðan. Til að styðja við þetta markmið vinnur Hrafnista eftir hugmyndafræði sem lýsir hvaða upplifun, menningu og tilfinningu við viljum skapa bæði fyrir þjónustuþega og starfsfólk. Hugmyndafræðin er hjartað í starfseminni en samhliða er unnið að verkefnum sem ætlað er að bæta starfsumhverfið og þróa þjónustuna.
– Einkunnarorð okkar eru að við vinnum á heimili íbúa, þeir búa ekki á vinnustaðnum okkar -
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
Allar frekari upplýsingar veitir Þuríður Ingibjörg Elísdóttir (thuridur.elisdottir@hrafnista.is).

Hrafnista rekur átta hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Þau eru Laugarás, Sléttuvegur, Skógarbær, Boðaþing, Ísafold, Hraunvangur, Hlévangur og Nesvellir.
Hrafnista Boðaþingi stendur nú á tímamótum og hefur hafið móttöku á nýjum íbúum á nýja 64 íbúa hjúkrunardeild. Með því fer heimilið úr 44 íbúum í 108. Deildin mun svo opna formlega í september.