Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri á Eir, blundar í þér stjórnandi?

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili  •  Onsite  •  17 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Eir óskar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og hressum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í fullt starf.

Önnur hæð heimilisins er blönduð deild með 42 íbúum. Við leggjum áherslu á heimilislegan brag, jákvæðni, samvinnu og samveru. Mikil áhersla er lögð á að starfsfólk fái þjálfun við að mæta sérþörfum heimilisfólks.

Mikilvægt er að viðkomandi geti tekið þátt í teymisvinnu, setið fjölskyldufundi og verið í samskiptum við ættingja.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra.
  • Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
  • Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi.
  • Almenn störf hjúkrunarfræðings/vaktstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Stjórnunarreynsla er kostur.
  • Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur.
  • Góð íslenskukunnáttu er skilyrði

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfniskröfur til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja náms- og starfsferilsskrá. Öllum umsóknum verður svarað.

Laun greidd samkvæmt gildandi stofnanasamningi Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:

Eygló Tómasdóttir, forstöðumaður hjúkrunar á netfanginu eyglot@eir.is eða í síma 522-5798.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

About Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili

Hjúkrunarheimilin Eir, Skjól og Hamrar eru sjálfseignarstofnanir sem starfa samkvæmt heilbrigðislögum til að vinna að málefnum aldraðra.

Industry
Healthcare & Social Services
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Website
eir.is
Social Media