Heilsuvernd

Aðstoð í eldhúsi

Heilsuvernd  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  5 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmann við aðstoð í eldhúsi. Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu, sjálfstæði og dugnað til verka. Unnið er í vaktavinnu og starfshlutfall eftir samkomulagi.

- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri

- Góð samskiptahæfni

- Þolinmæði og sveigjanleiki

- Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum

- Sjálfstæði í starfi

- Umsækjendur þurfa að geta talað og skilið íslensku

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Upplýsingar um starfið veitir Hallgrímur Friðrik Sigurðarson yfirmatreiðslumeistari Heilsuverndar hjúkrunarheimilis hallgrimur@hlid.is

Heilsuvernd

About Heilsuvernd

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is

Industry
Healthcare & Social Services
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
1987
Website
hlid.is
Social Media