Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfing óskar eftir brosmildum og þjónustulunduðum einstaklingum í ýmis störf í nýrri rekstrareiningu að Urðarhvarfi 16, við erum að ráða meðal annars í umönnun og aðhlynningu aldraðra, eldhús, þvotthús og aðstoð við iðju-og sjúkraþjálfun.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Ef þú hefur áhuga á að starfa í öflugum fjölmenningarhóp í glæsilegu húsnæði Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfing, þá settu inn umsókn hér.
Helstu verkefni
- Almenn umönnun og aðhlynning aldraðra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg
- Liðlegheit, jákvæðni og þjónustulund
- Góð íslenskukunnátta og/eða enskukunnátta
- Skilyrði fyrir ráðningu er hrein sakaskrá
Unnið er með allar almennar umsóknir með reglulegum hætti en ef óskað er eftir nánari upplýsingum varðandi úrvinnslu eða hafið samband við forstöðumann, Aníta Magnúsdóttir, forstöðumaður, anitam@hv.is.

Heilsuvernd is the largest preventive health care company in Iceland celebrating 25 years of business in the sectors of occupational health and safety, general practice, absence management and corporate medicine. We also run the largest online health information website in Iceland called www.doktor.is