Krónan

Afgreiðslustjóri í Krónunni Lindum

Krónan  •  Onsite  •  14 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Krónan leitar að afgreiðslustjóra sem brennur fyrir framúrskarandi þjónustu og upplifun viðskiptavina. Afgreiðslustjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri afgreiðslusvæðis, þar með talið afgreiðslu, sjálfsafgreiðslu, uppgjöri kassa, þjónustuupplifun viðskiptavina og eftirliti með öryggi og verklagi. Um vaktavinnu í fullu starfi er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla
  • Umsjón með sjálfsafgreiðslusvæði og afgreiðslukössum
  • Eftirlit með frávikum á afgreiðslusvæði
  • Samvinna við eftirlitsdeild, Stafræna þróun og aðra lykilaðila
  • Gæði á upplifun viðskipavina við afgreiðslusvæði
  • Frágangur á afgreiðslusvæði
  • Uppgjör afgreiðslukassa
  • Verðmerkingar á kassasvæði

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og ábyrgð í starfi
  • Færni til að læra á allar tæknilausnir á afgreiðslusvæði
  • Reynsla úr þjónustustarfi er kostur
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju

Hjá Krónunni starfar fjölbreyttur hópur fólks og við leggjum mikið upp úr því að skapa góðan vinnustað. Krónan á ánægðustu viðskiptavinina 9. árið í röð og erum með jafnlaunavottun VR.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Páli Pálssyni svæðisstjóra í gegnum pall@kronan.is

Krónan

About Krónan

We deliver the right products to you in the cheapest way possible.

Industry
Food & Beverage
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
2000
Website
kronan.is
Social Media