Festi hf.

Aðalgjaldkeri hjá Festi

Festi hf.  •  Onsite  •  3 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum, ábyrgum og lausnamiðuðum einstaklingi í starf aðalgjaldkera hjá Festi. Aðalgjaldkeri gegnir lykilhlutverki í daglegri fjárstýringu samstæðunnar og ber faglega ábyrgð á framkvæmd greiðslna, bankaviðskiptum, lausafjáreftirliti og samræmingu gjaldkerastarfa. Starfið felur jafnframt í sér virka þátttöku í þróun fjármálaferla, sjálfvirknivæðingu og eflingu innra eftirlits. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í öflugu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg umsjón og samræming daglegra gjaldkerastarfa og greiðslna.
  • Umsjón með bankaviðskiptum, bankareikningum og greiðsluflæði.
  • Daglegt eftirlit með lausafjárstöðu og stuðningur við áætlanagerð og stýringu lausafjár.
  • Tryggja að greiðsluferlar, samþykktir og framkvæmd séu í samræmi við skilgreindar heimildir, reglur og innra eftirlit.
  • Eftirfylgni með rekjanleika greiðslna og öðrum lykilstýringum í gjaldkeraferlum.
  • Samskipti við banka, fjármálafyrirtæki og aðra þjónustuaðila.
  • Upplýsingagjöf, greiningar og stuðningur við fjármálateymi og félög innan samstæðunnar.
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu umbóta, sjálfvirknivæðingar og einföldunar á fjárstýringar- og greiðsluferlum.
  • Þátttaka í þróun verklags og stýringa sem stuðla að öruggri og skilvirkri meðhöndlun fjármuna.
  • Önnur verkefni á sviði fjárstýringar eftir þörfum.

Hæfnis- og menntunarkröfur

  • Reynsla af gjaldkerastörfum, fjárstýringu, bókhaldi eða sambærilegum fjármálaverkefnum.
  • Reynsla af ábyrgð á greiðsluferlum, bankaviðskiptum eða lausafjárstýringu er kostur.
  • Töluleg- og greiningarfærni ásamt nákvæmum og öguðum vinnubrögðum.
  • Góð Excel-kunnátta og almennt sterk kerfis- og tæknifærni.
  • Skilningur á innra eftirliti, verkaskiptingu og rekjanleika í fjármálaferlum er kostur.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að forgangsraða og fylgja verkefnum eftir.
  • Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Menntun á sviði viðskipta, fjármála, reikningshalds eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.

Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sín. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Andri Kristinsson, forstöðumaður innheimtu og fjárstýringar, andrik@festi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2026.

Festi hf.

About Festi hf.

Hlutverk Festi er að stýra fjárfestingum, styðja við verðmætasköpun og skapa ný tækifæri.

Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi á hvert á sínum markaði; matvöru-, raftækja-, eldsneytis-, raforkusölu-, lyfsölu og þjónustustöðvamarkaði. Fasteigna- og vöruhúsarekstur og kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af starfsemi samstæðunnar.

Móðurfélagið Festi á dótturfélögin Krónuna sem rekur samnefndar matvöruverslanir, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Lyfja sem er ein stærsta keðja apóteka á landinu og rekur 45 staðsetningar um land allt, Yrkir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.

Festi's mission is to drive investments, support value creation and create new opportunities.

Festi owns and operates companies that are leaders in each of their markets; food, electronics, pharmaceuticals, fuel, electricity sales and service stations. Real estate and warehouse operations along with the purchase and sale of securities are also part of the Group's activities.

The parent company Festi owns the subsidiaries Krónan which operates supermarkets, N1 which operates fuel and electricity sales service stations and various services related to lubrication and automotive services, ELKO which is the largest electronics store in Iceland, Lyfja which is the largest pharmacy chain in Iceland, Yrkir eignir, which owns and operates the Group's real estate and Bakkann vöruhótel, which specialises in warehouse services and distribution.

Industry
Retail & Ecommerce
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
Unknown
Website
festi.is
Social Media